AUSTURLAND
Síbrotamaður í 9 mánaða fangelsi
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt
karlmann á þrítugsaldri í níu mánaða
fangelsi fyrir þjófnað og brot gegn
valdstjórninni. Maðurinn hefur
margsinnis komið við sögu lögreglu.
Maðurinn er dæmdur fyrir að hafa
brotist inn í þjónustumiðstöð
tjaldsvæðisins á Höfn og fyrir að hafa
hótað lögreglumönnum lífláti og
líkamsmeiðingum. Ákærði er nú
sakfelldur í þriðja sinn fyrir brot
gegn valdstjórninni. Tekið var mið af
sakaferli hans við ákvörðun refsingar
en líka játningu hans sem mildaði
dóminn. Þá var einnig horft til þess að
hótanir ákærða í garð lögreglumannanna
voru margítrekaðar og ofsafengnar.
Yfirlit landsbyggðafrétta >>> 140